Velbekommen!!!

Erla Kristín:)

08.12.2007 02:33:38 / erlak79

Halló Halló

Ágætt að halda upp á árs fjarveru með því að skella einhverju hér inn.... og líka reyna að vera jafn dugleg og astalapastan mín;) Líst vel á þessa hugmynd hennar Ástu minnar að reyna að endurvekja blogg menningunaJ Annars er allt of mikið búið að gerast síðan í fyrra til að þylja það allt upp hér.....hehe;)  Maður er annars bara kominn í jólafrí frá skólanum, var að koma heim úr skemmtiferð til Köben með vinnunni og er svo bara að vinna. Jólaundirbúningur að nálgast hámarkið.... styttist í að maður fari að skella sér í sveitasæluna  þar sem við tekur ekkert nema afslöppun, smákökubakstur, sjónvarpsgláp og bara tjill með familíunni JJJJJJ En maður er svo bara að vinna þangað til......

En allavega.... komin með nokkrar línur og ætli ég láti það ekki duga í þetta skiptið..... vona bara að það líði ekki annað ár áður en manni tekst að henda einhverju hérna inn....hehe;)

Farvel


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 03:00:57 / erlak79

Það hlaut að koma að því:)

Það er kannski kominn tími á nokkrar línur............ maður er svo til alveg dottinn inní myspace og hættur að gefa sér tíma til að blogga.......

Ekki hægt að segja að mikið hafi gerst síðan í sólinni á Spáni bara same old vinna og vinna meira, alveg ekki að gera sig!!!! Kíkti reyndar til Köben um verslunarmannahelgina og það var alveg hreint æði::haha: Svo er líka smá séns á að maður sé að fara þangað aftur núna í desember með vinnunni......bara spennt:D

Svo fer ég á Rockstar tónleikana 30.nóv, Ampop útgáfutónleikana núna á föstudaginn og svo djamm á laugardaginn með yndislegu systur minni og öllum hennar frábæru vinkonum þannig það er nóg að gera framundan;)

En allavega langaði bara til að láta vita að ég sé enn á lífi

endilega kíkið á

http://www.myspace.com/erlakristin

 

 



LATER


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.06.2006 16:34:27 / erlak79

KVEDJUR FRA SPANI

Er i gedveikri steik og geggjudu vedri her a spani, buid ad vera alveg gedveikt vedur og ogislega gaman..... stefnum a djammid her i gran alicant i kvold, alicante a morgun og benidorm um helgina, alveg yndislegt lif......bid vel ad heilsa ollum a klakanum og vona ad thid hafid thad gott.... :haha:

solarkvedja

Erla8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 11:54:04 / erlak79

Nú reynir á!!!!!

Jæja enn og aftur skal maður finna lausnina hehe :):):) Nú er planið að finna 100 bíómyndir......... good luck:):):)

Reyni svo að blogga fljótlega,

see ya:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 15:54:48 / erlak79

Tölvan mín er alveg ekki að gera góða hluti!!!!!

Sælt veri fólkið!!! Aðeins of langt síðan síðast en er það ekki alltaf!!??!!;)

Hef enn og aftur verið netlaus, nú er það hleðslusnúran sem er ónýt......alveg ekki að gera sig!! En allavega, maður nýtir þá kannski tækifærin þegar þau gefast til að skella einhverju hérna inn, ykkur öllum til ómældrar ánægjuJ JJ J Er það ekki annars??????

Annars lítið að frétta, allt við það sama.....

Kíkti í partý til Elísabetar um helgina í smá surprise partý fyrir Kötlu þar sem hún á bráðum afmæli og það var fámennt, góðmennt og alveg þrusustuð á okkur....allavega til að byrja með;) Reyni að skella myndunum inn sem fyrst....þegar mér tekst að redda snúru.....en já það var alveg svaka stuðJ JJ J

Jæja verð að halda áfram að vinna......reyni að redda tölvumálum sem fyrst svo ég geti nú haldið áfram að tjá mig......

 

See ya


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 14:15:30 / erlak79

Páskafjörið á enda!!!

Þá er nú aldeilis orðið tómlegt........mamma og krakkarnir fóru aftur heim í gær og er það alveg ömurlegt!!!!! Sakna þeirra ekkert smá mikið og vildi að þau gætu bara verið hérna alltaf!!!! En annars erum við búin að hafa það alveg endalaust gott um páskana, ekki mikil afslöppun sökum flutninga og útréttinga endalaust en þó búin að hafa það alveg endalaust notalegt JJ JJ  

Buðum mömmu í dekur og elduðum rosa góðan mat fyrir hana í tilefni af afmælinu hennar, héldum svo fína veislu fyrir familíuna sem var rosa gaman og náðum mömmu og Lillu systur hennar meirað segja með okkur á djammið eitt kvöldið og það var alveg meiriháttar gaman;) Það er bara alveg endalaust gott og gaman að hafa þau hérna hjá okkur!!!!

Annars er maður bara að vinna eins og vanalega, hlakka svo mikið til laugardagsins því þá á Hildigunnur systa afmæli og ætlar hún að halda uppá það með vinkonunum og ætlum við að skella okkur í djammið.....það verður örugglega meiriháttar gaman!!!! JJ JJ J

 

 

Jæja

Verð að fara að vinna

Þangað til næst

Erla




» 2 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 12:15:00 / erlak79

Sambandslaust við umheiminn!!!!

Það er ekkert smá erfitt að vera netsambandslaus!!!!!! Ásta nú skil ég hvað þú átt við......;) það er alveg með ólíkindum hvað maður er orðinn háður netinu og ég tala nú ekki um GSM-inn!!!! En netleysið byrjaði þannig að tölvan fór bara allt í einu að neita að fara inná netið og gaf ekki nokkrar útskýringar á því og svo í framhaldinu þá var maður að flytja og þá virkar ekki sambandið í nokkra daga og nú bíð ég bara og vona að þetta verði nú allt komið í lag eftir helgina.... maður verður því aðeins að taka sér pásu frá vinnunni og koma einhverju hér inn JJ JJ

Við erum fluttar systurnar og allt gekk að óskum og er alveg meiriháttar að vera komnar í Geislann JJ J Það hefur því lítið gengið á hjá manni nema flutningar og vinna síðustu viku og vá hvað það er mikið vesen og vinna að flytja svona maður!!!!Helst vildi ég aldrei aftur!!

En já páskarnir bara í næstu viku, mamma og krakkarnir koma öll í bæinn í dag og ég hlakka alveg óendanlega mikið til að fá þau hingað JJ J Ég og Hildigunnur búnar að vera á fullu að reyna að gera Geislann eins fínan og hægt er miðað við aðstæður, enn verið að flísaleggja og svoleiðis en ég held þetta sé bara allt saman að koma JJ JJ JJ

En verð að hætta, þarf að vera dugleg í vinnunni því það er svo mikið að gera!!!!!!!!!

Endilega takiði prófin sem ég setti hérna neðst vinstra megin....algjör snilld....... úkoman hjá mér var frekar góð því ég var Carrie í Sex and the City, Susan í Desperate Housewifes en það versta var að ég var Harold Bishop í Neighbours!!!!!!!!!!!!!!!!! Alveg ekki að gera sig en allavega

see ya

 

Bara eitt enn ......þið verðið að hjálpa okkur Ástu með þessa hljómsveitaþraut, á þessara mynd eiga að finnast 72 hljómsveitir og hingað til erum ég og Ásta einhvers staðar á milli 40 og 50, ekki alveg viss, þarf að fá smá update frá henni.....hehe JJ JJ en endilega látið á þetta reyna!!!

 

 

Slóðin til að fá myndina stærri:

 

http://photos1.blogger.com/blogger/223/547/1600/hs5gtd.jpg


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 23:37:39 / erlak79

Long time no seen!!!!!

Jæja kannski maður ætti að reyna að standa við orð sín..... en allavega nú er alveg að koma að því að við flytjum og allt að fara á fullt í pökkun, þrifum og öllu tilheyrandi.... ég og sis kláruðum að taka eldhúsið í gær og þvílíkur léttir að það sé búið!!!!! Ég get samt ekki beðið eftir því að þetta verði búið og við komnar endanlega í Þorláksgeislann J JJ JVið þurfum að afhenda Sóltúnið 1.apríl og svo fáum við vonandi nýju íbúðina afhenta á morgun...... er alveg að farast úr spenningi!!!!! Þarf samt því miður að vinna allan daginn en er þó í fríi um helgina svo það er aldrei að vita nema maður kíki á djammið svona til tilbreytingar.... hef ekki farið út í rúman mánuð..... alveg ekki að gera sig en kannski góð ástæða fyrir því.....

 

 

Ég varð nefninlega veik þarna í lok febrúar og var veik alveg í rúma viku en það sem verra var að hún elsku Didda mín lést þann 28.febrúar og er tíminn búinn að vera mér mjög erfiður undanfarið þar sem ég sakna hennar endalaust mikið því hún var og hefur alltaf verið svo stór hluti af mínu lífi, alltaf verið mín “auka” amma og reyndist mér alltaf svo vel. Mikill söknuður ríkir í hjarta mínu en einnig endalaust þakklæti fyrir allt það sem hún gaf mér og mun ég vera ævinlega þakklát fyrir þann tíma sem ég fékk að njóta í návist hennar. Ég á óteljandi minningar um hana elsku Diddu mína sem munu lifa með mér alla tíð og fyrir það mun ég alltaf vera þakklát.

Alveg var það yndislega frábært að Ástan mín kom til landsins alveg óvænt í byrjun mars..... átti ekki orð þegar hún labbaði allt í einu inn á Ruby’s, algjör snilld J JJ Jþað var svo gott að fá hana aðeins heim sérstaklega á þessum tíma og gott hún gat komið í jarðaförina...... takk elsku Ásta mín.....sakna þín enn meira eftir að þú fórst aftur og hlakka óendanlega mikið til að fá þig alveg heim aftur................ J JJ JJ JJ

Brátt koma páskar og þá koma mamma og krakkarnir til okkar og ég hreinlega get ekki beðið það verður alveg yndislegt. Ég kíkti í heimsókn til Egilsstaða um helgina og alltaf er jafn æðislegt að koma heim í “sveitina” hehe J JJ Þannig að já ég er búin að vera frekar fjarri umheiminum síðustu vikur og búin að vera að vinna alveg þokkalega mikið líka þannig að ég held að það sé komið að því að maður kíki út á lífið og fari að hitta eitthvað af vinum mínum og eiga mér eitthvað líf...... alveg löngu kominn tími á það J JJ

En já ég er að spá í að halda áfram að pakka niður svo mér takist einhvern tíman að koma mér og mínu endalausa drasli héðan út........

Þangað til næst

Erla










» 5 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 23:32:37 / erlak79

Ætla að verða jafn dugleg og Rúna beib!!!!!

Jæja, lítið að ske....míns orðin veik og ekki sátt:frown::frown::frown: Búin að vera inni í allan dag að horfa á sjónvarpið, hanga og sofa.... var að vinna veik 12 tíma vakt í gær og er því endalaust fegin að vera heima í dag að hafa það kósí....... pabbi kom í heimsókn til mín og var hjá mér í kvöld, ekkert smá næs:D kom með bollur frá henni yndislegustu ömmu Borgu minni, ekkert smá góðar!!!! og svo borðuðum við kvöldmat saman og já bara alveg æðislegt kvöld þrátt fyrir veikindin:)

Þannig að það er bara lítið að frétta, við bara á fullu að reyna að ákveða gólefni fyrir Þorláksgeislann og endalaus spenningur yfir því að fara að flytja..... samt alveg ekki að nenna að pakka og þrífa og gera allt það sem flutningunum fylgir en það verður gott þegar þetta allt saman er búið og við búnar að koma okkur fyrir á nýja staðnum:):)

En já ég vona bara að maður fari að hressast og leggist nú ekki alveg flatur í flensuna, er að spá að farað horfa á Idolið ameríska.... en annars er pabbi búinn að vera að skanna inn myndir síðan í gamla..... langaði því bara að setja inn myndir af mér og yndislegu systur minni henni Hildigunni frá því við vorum litlar, alveg gaman að þessu:haha::haha::haha:

Alltaf gaman á jólunum..........

En þangað til næst hóst hóst........


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 20:17:07 / erlak79

Náðist að klukka mína;)

Anna Bára og Ásta Sóley, kærar þakkir fyrir klukkið.... eða þannig.... hehe;) Hope you enjoy;)

4 störf sem ég hef starfað við um ævina: Domino’s Pizza; Sömu rónabúllu og Hildigunnur við Austurstrætið (Fröken RVK) þar sem fleiri ættmenn hafa líka stoppað við; Ýmis störf með fötluðum; Hótelum út um allar trissur nú síðast Hótel Loftleiðir.

4 myndir sem ég get horft á aftur og aftur: Tommy Boy, Iceage, Bridget Jones's Diary; American Pie.

4 staðir sem ég hef búið á: Hraunbæ 144 í Árbænum; menntaskólanum á Egilsstöðum (endaíbúð); Grundtvigs hojskole í Hilleröd; Sóltúni 7 í Reykjavík.

4 sjónvarpsættir sem ég fíla: Friends; The Simpsons; Desperate Housewifes; Nip Tuck.

4 staðir sem ég hef farið í frí:  Algarve á Portúgal; Kenya í Afríku; Benidorm á Spáni; Kaupmannahöfn í Danmörku.

4 heimasíður sem ég heimsæki daglega:  Mbl.is; Spamadur.is; Ýmsar bloggsíður; Hotmail.com.

4 uppáhaldsmatartegundir:  Burrito’s; Nautalundir með öllu tilheyrandi; Mömmumatur; Nonna biti (Nauta og osta).

4 cd sem ég gæti aldrei verið án:  Saybia – Day after tomorrow; Nirvana – Unplugged; James Blunt – Back to Bedlam; Alice in Chains – Unplugged.

4 staðir sem ég vildi frekar vera á:  Danmörku; Suður Ameríku; Afríku; Ítalíu.

4 hlutir sem ég hlakka til:  Að fara til Spánar í sumar með mömmu, systkinum mínum, Lillu og Heiðu; Þegar við verðum fluttar í Þorláksgeislann; Þegar ég verð orðin rík; Þegar ég veit hvað mig langar að gera í framtíðinni.

 

Ég ætla að klukka: Elísabetu, Kötlu og Örnu....smá séns á að þær hafi ekki verið klukkaðar (efa það þó þar sem flestir hafa nú þegar verið það;)....)






















» 6 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 14:22:33 / erlak79

JÆJA!!!!!

Æ hvað það virðist ekki ætla að ganga hjá mér að vera duglegri að blogga........ en það kannski kemur að því að maður fari að gera þetta almennilegaJ En annars er bara allt við það sama, vinna, borða, sofa.......heheJ Aðalfréttin er nú líklegast sú að við erum að fara að flytja, mamma búin að selja Sóltúnið og við að fara uppí grafarholt og er ég bara orðin alveg rosalega spenntJ JJ JJ J Það verður skrítið að vera kominn aftur uppí sveit en ég held þetta verði bara alveg hreint frábært:haha::haha::haha: Mars mánuður fer sem sagt í niðurpökkun og flutninga og stemmt að því að vera búnar að ljúka þessu af 1.aprílJ

 

Annars er nú lítið að gerast, maður er blankari en ég veit ekki hvað, ástandið sjaldan verið jafn slæmt þó maður geri ekkert nema vinna......er að spá í að ræna bara banka eða hreinlega fara bara að selja mig!!!!!!!! Hehe nei ætli það....held maður leggist nú ekki alveg á það plan akkúrat núna......J JJ JJ

En já kíkti aðeins á djammið um helgina, rosa stuð á Pravda með Árna frænda og Svönu frænku og fleira fólki, alls ekki slæmt....... Hildigunnur byrjaði kvöldið með okkur rosa hress en fór snemma heim því hún þurfti að fara að vinna snemma á sunnudeginum..... en plönin fyrir vikuna eru óráðin og hvað þá næstu helgi!!!! Maður finnur sér eflaust eitthvað að geraJ JJ J Ég ætla nú að fara að reyna að taka hana Sigrúnu frænku til fyrirmyndar og fara að koma einhverjum myndum hér inn og fara að vera duglegri að þessu................

En þangað til þá

See ya


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 16:02:01 / erlak79

Gaman Gaman!!!

Vá hvað maður er slappur bloggari…….hehe en allavega!!! Það var ekkert smá gaman hjá okkur stelpunum sem mættu í óvissuferð á laugardaginn!!!!! Ég allavega skemmti mér konunglega og langar bara að þakka fyrir mig til þeirra sem sáu um að plana þettaJ JJ Við byrjuðum á að fara að skjóta af loftrifflum uppí Egilshöll sem var bara geðveikt, fórum svo og sýndum snilli okkar í magadansi;) skelltum okkur í sund og þar á eftir vel svangar héldum við heim til Elísabetar í rosa góðan mat, bjór og annað tilheyrandi;) Þegar við vorum í því að taka okkur til fyrir djammið og drekka í okkur bjórinn (gosið hjá sumum) mætir ein snilldar skvísa og heldur fyrir okkur kynningu á hjálpartækjum ástarlífsins……alveg magnað J JJ JJ Svo eftir sjúklega skemmtilegan dag og kvöld skelltum við okkur í bæinn og var djammað lengi og vel, allavega vorum við Arna síðast þegar ég vissi í leigubíl á leið heim um klukkan hálf 8 á sunnudagsmorgni…..hehe;)

En annars hefur maður haft nóg að gera í vinnu eins og vanalega en þó eitthvað aðeins að róast svo ég get átt mér aðeins meira lífJ JJ Er að fara að hitta hana yndislegu Sunnu mína í kvöld:D ætlum kannski bara að kíkja eitthvað og fá okkur að borða og svo vonandi fær maður aðeins að kíkja á yndislegu litlu snúlluna hana Lenu, alveg er hún sætustJ JJ J Svo er ég að fara að halda saumaklúbbinn, sem átti að vera í síðustu viku en var frestað, með stelpunum úr háskólanum á fimmtudaginn og já það er bara alveg nóg að gera og verður bara gaman hjá mérJ JJ

En ég verð víst að fara að halda áfram að vinna;) bið bara að heilsa í bili og vona að þið hafið það gottJ JJ J

Erla Perla








» 6 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 13:58:23 / erlak79

LOKSINS LOKSINS!!!!!!!

Jæja alle sammen, GLEÐILEGT ÁRJ JJ

Vá hvað þetta er eitthvað seint á ferð....... það er kannski kominnn tími á smá blogg, hehe alveg er það makalaust hvað ég er búin að vera löt við þetta enda kannski ástæða til þar sem ég er alltaf í vinnunni eða sofandi eða bara að gera eitthvað allt annaðJ JJ  En já nýtt ár nýir tímar og allt einhvern vegin við það sama...... nema kannski það að það er farið snjóa oftar og meira og ég sem er á sléttustu heilsársdekkjum sem fundist hafa er alveg endalaust spólandi hvert sem ég fer en alltaf er nú gaman að leika sér í vetrarfærðinniJ JJ vá hvað ég verð að fara að gera eitthvað í þessum málum........

En annars er nú bara lítið að frétta, maður vinnur og vinnur til að bæta fyrir jólaeyðsluna og skellir sér svo á djammið um helgarJ Kíkti út bæði á föstudag og laugardag núna um helgina og skemmti mér alveg konunglega með Árna frænda, Bjössa og Hildigunni........ byrjaði bæði kvöldin á að kíkja með strákunum í pool og svo var stefnan tekin á miðbæinn og djammað fram undir morgun, ALGJÖR SNILLD J JJ

En framhaldið er svo bara óljóst, bara vinna og vinna og vinna meira, ætla ekki að djamma næstu helgi þar sem ég þarf víst að vinna þá líka en maður djammar svo helgina eftir það þar sem smá óvissuferð er á dagskránni og er ég sjúklega spennt yfir þvíJ JJ Planað er að ég haldi smá “saumaklúbb” á þriðjudagskvöld og ætlum við skvísurnar sem vorum saman í Háskólanum að hittast þá í gúddí fílíng en þess utan er lítið annað planað á dagskránni. 

En allavega......... ég bið bara að heilsa í bili, reyni að láta ekki líða svona langt á milli blogga hjá mér..... vona svo líka að ég fari að eignast almennilegt líf fljótlega, allavega áður en ég verð geðveik á allri þessari vinnu, þreytu og vinaleysi!!!!!

MISS YOU ALL

Erla








» 6 hafa sagt sína skoðun

30.12.2005 17:17:26 / erlak79

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag…:)

Mig langar bara að byrja á því að óska yndislegu litlu systur minni henni Björgheiði til hamingju með 14 ára afmælið og svo auðvitað líka sjálfri mér með 26 ára afmælið í leiðinni…hehe J Björgheiður mín ég vona að þú eigir góðan dag og gott afmæliskvöld með vinkonum þínum og haldir áfram að vera alltaf svona yndisleg J Það er og hefur alltaf verið alveg meiriháttar að eiga sama afmælisdag og þú sæta mín J JJ J

 

Ein af okkur systrum á afmælisdaginn!!!

Það er alveg með ólíkindum hvað ég er búin að vera með mikla fortíðarþrá undanfarið, mikið búin að vera að hugsa til baka um gamla tíma og vá hvað það er margt sem ég sakna og margir sem maður saknar sem maður hefur ekki hitt eða talað við í langan tíma........... ætli þetta tengist því eitthvað að nú er maður ekki lengur 25 og orðið enn styttra í fertugsaldurinn....hehe;) Alveg undarlegt en samt búið að vera fróðlegt og gaman að rifja svona upp liðna tíma, margt sem tengist Egilsstöðum þar sem maður er nú staddur hér en já það er alveg magnað hvað maður hefur oft átt það gott og haft það gaman um æfina...... J JJ J

En já maður er á leiðinni aftur til höfuðborgarinnar í kvöld svo maður verður í bænum á gamlárs og það verður vonandi stuð..... boð heima hjá pabba til að byrja með og svo veit ég ekkert hvað verður um mann eftir það....vonandi bara eitthvað gott djamm þar sem maður er nú í fríi í vinnunni á nýárs...... alveg óvænt.....hehe;) En mig langar bara til að óska öllum gleðilegs nýs árs þar sem þetta er nú alveg örugglega síðasta færsla ársins 2005 og vona bara að árið 2006 verði enn betra en það sem er að líða.......

Hafið það gott yfir áramótin og gangið hægt inn um gleðinnar dyr......;)

Afmælis og nýárskveðja

Erla J


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Dagsetning
21. mars 2010